Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 573/2022-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 573/2022

Fimmtudaginn 2. febrúar 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 7. desember 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. nóvember 2022, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 12. maí 2022 og var umsóknin samþykkt 2. júní 2022. Þann 21. nóvember 2022 var kærandi boðaður í viðtal hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram daginn eftir. Kæranda var greint frá því að skyldumæting væri í viðtalið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 23. nóvember 2022, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda til þess að hafa ekki mætt í boðað viðtal. Skýringar bárust frá kæranda 24. nóvember 2022. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. nóvember 2022, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Frekari skýringar bárust frá kæranda 29. nóvember 2022 og var mál hans því tekið til endurumfjöllunar. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. desember 2022, var kæranda tilkynnt að skýringar hans hefðu ekki verið metnar gildar og því væri fyrri ákvörðun staðfest.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 7. desember 2022. Með bréfi, dags. 20. desember 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 3. janúar 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 4. janúar 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar greinir kærandi frá því að ástæða kæru hans sé niðurfelling á rétti hans til atvinnuleysisbóta.

Kæranda þyki leitt að hafa misst af boðuðu viðtali. Hann hafi ekki mætt í viðtalið þar sem hann hafi gleymt því fyrir mistök. Öll séum við mennsk og gerum mistök. Við boðun viðtalsins hafi kærandi verið að byrja í þjálfun við gerð veiðinets í verksmiðju í nágrenninu. Þar hafi hann verið að læra nýja hluti og kynnast nýju fólki. Fyrir mistök hafi honum yfirsést skilaboð frá Vinnumálastofnun. Honum þyki það leitt og lofi að það komi ekki fyrir aftur.

Fjárhagsstaða kæranda sé ekki góð og hann sé enn að leita að vinnu. Því biðji hann um að réttur hans til bóta verði ekki felldur niður vegna smávægilegra mistaka eins og hann hafi gert. Næst verði hann varkár og skoði reglulegar tölvupóst og smáskilaboð.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga þann 12. maí 2022 og umsóknin hafi verið samþykkt þann 2. júní 2022. Útreiknaður bótaréttur hafi verið 100%.

Þann 21. nóvember 2022 hafi kærandi verið boðaður til viðtals á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Keflavík sem fara ætti fram klukkan 10:00 þann 22. nóvember 2022. Kæranda hafi verið tjáð að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysistrygginga til hans yrðu stöðvaðar. Boðunin hafi verið send á netfang kæranda klukkan 9:46. Kærandi hafi ekki mætt í boðað viðtal og engin tilkynning um forföll hafi borist stofnuninni.

Með erindi, dags. 23. nóvember 2022, hafi Vinnumálastofnun óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt í boðað viðtal. Stofnunin hafi áréttað að ef atvinnuleitandi hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna geti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysistrygginga. Skýringar kæranda hafi borist Vinnumálastofnun þann 24. nóvember 2022.

Með erindi, dags. 25. nóvember 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysistrygginga til hans hefðu verið stöðvaðar á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ástæða þess hafi verið sú að kærandi hafi ekki mætt til boðaðs viðtals þann 22. nóvember 2022. Frekari skýringar hafi borist frá kæranda þann 28. nóvember 2022 og því hafi mál hans verið tekið fyrir að nýju. Með erindi, dags. 2. desember 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að það væri mat stofnunarinnar að staðfesta bæri ákvörðun í máli hans frá 25. nóvember 2022. Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 7. desember 2022. Þar komi fram að ástæða þess að kærandi hafi ekki mætt til boðaðs viðtals sé meðal annars sú að boðunin hafi farið fram hjá honum og að hann hafi ekki séð umrædd skilaboð sem hafi borist honum þann 21. nóvember 2022.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Eitt af almennum skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt [h]-lið 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Í 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skuli boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.

Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hann verið boðaður til viðtals hjá stofnuninni en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skuli vera reiðubúnir til að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Fyrirliggjandi sé að kærandi hafi ekki mætt til viðtals á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Keflavík þann 22. nóvember 2022. Áður hafi kærandi fengið senda boðun í tölvupósti þar sem tilgreind hafi verið tímasetning og staðsetning. Kærandi hafi fengið rúmlega sólarhrings fyrirvara. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi ef atvinnuleitandi mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar komi fram að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Jafnframt sé tekið fram í greinargerðinni að ef hinn tryggði bregðist þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Það sé fortakslaust skilyrði svo að unnt sé að aðstoða umsækjanda um atvinnuleysisbætur við að fá starf við hæfi og gefa honum kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitandi sinni þeim boðunum sem honum séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, á þá fundi, námskeið og í önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Kærandi hafi verið boðaður til viðtals þann 22. nóvember 2022 en í skýringum hans til Vinnumálastofnunar og úrskurðarnefndarinnar segi hann að umrædd boðun hafi farið fram hjá honum. Umrædd boðun hafi verið send á uppgefið netfang kæranda. Kærandi hafi sjálfur valið að vera í rafrænum samskiptum við stofnunina þegar hann hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta. Þegar umsókn kæranda hafi verið samþykkt hafi honum verið tilkynnt að Vinnumálastofnun myndi framvegis koma skilaboðum til hans með tölvupósti, skilaboðum inn á Mínum síðum eða með smáskilaboðum. Kærandi hafi því verið upplýstur með fullnægjandi hætti um hvernig honum yrði send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Boðun til umrædds fundar hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Með vísan til framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Boðun vegna umrædds viðtals hafi verið send kæranda þann 21. nóvember 2022 klukkan 9:46 en viðtalið hafi átt að eiga sér stað daginn eftir, eða þann 22. nóvember 2022 klukkan 10:00. Kærandi hafi því verið boðaður til viðtals með rúmum sólarhrings fyrirvara. Vinnumálastofnun vísi í þessu samhengi til niðurlags ákvæðis 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem sérstaklega sé kveðið á um að atvinnuleitendur skuli vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. laganna hafi komið inn í lög um atvinnuleysistryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009 en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhrings fyrirvara á þá skrifstofu sína sem sé næst lögheimili viðkomandi. Sá fyrirvari sem kærandi hafi fengið til að bregðast við boðun til viðtals sé að mati Vinnumálastofnunar hæfilegur tími fyrir atvinnuleitendur til að gera viðeigandi ráðstafanir svo að þeim sé kleift að verða við skyldum sínum.

Það sé mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 7. mgr. 9. gr. og 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar með því að hafa hafnað því að mæta í viðtal. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og því beri honum að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Niðurstaða Vinnumálastofnunar sé sú að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. 

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var boðaður í viðtal hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram þann 22. nóvember 2022. Kæranda var greint frá því að skyldumæting væri í viðtalið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Jafnframt var kærandi upplýstur um að ótilkynnt forföll gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Kærandi hefur borið því við að hafa forfallast vegna þess að honum hafi yfirsést boðun í viðtalið.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var boðaður til Vinnumálastofnunar með sannanlegum hætti, þ.e. með tölvupósti, smáskilaboðum og skilaboðum á „Mínum síðum“. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. nóvember 2022, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum